Álag ferðamennsku á náttúru Íslands

Fimmtudaginn 30. október kl. 17.00-18.00

Örráðstefna í Öskju – náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands

(við hlið Norræna hússins) – aðalsalur (stofa 132)

ALLIR VELKOMNIR

Með vaxandi fjölda gesta til landsins hafa áhyggjur fólks af álagi á land og þjóð farið vaxandi. Sumarið 2014 var umræða um sýnilegt álag á helstu náttúruperlur landsins vegna fjölda gesta mikil. Myndir af skemmdum vegna utanvegaaksturs voru áberandi og fjölmiðlar ræddu um viðhorf gesta til og umgengni þeirra um landið. Á þessari fjórðu örráðstefnu Rannsóknamiðstöðvar ferðamála verður farið yfir stöðu þekkingar á álagi á náttúru landsins af völdum ferðafólks og hvernig hægt er að bregðast við því. 

Ráðstefnan er haldin viku eftir dagslöngu þingi Landgræðslu ríkisins og Umhverfisstofnunar um áhrif ferðamanna á náttúru Íslands og mun áherslan vera á að draga saman lærdóm þess þings. Hún hefst á örfáum aðfararorðum um tilefni og tilurð þessarar örráðstefnu. Þar á eftir munu frummælendur stíga á stokk og í stuttum 5 mínútna glærulausum erindum lýsa þekkingu sinni á álagi vegna ferðamanna á náttúru Íslands. Að því loknu verður opnað fyrir umræður og spurningar og eru aðilar úr greininni sem og fjölmiðlafólk sérstaklega hvatt til að mæta í þágu hreinskiptinnar og opinnar umræðu.

Frummælendur á örráðstefnu eru:

 

 

 

Dr. Andrés Arnalds

Landgræðsla ríkisins

Dr. Rannveig Ólafsdóttir

Háskóli Íslands

Ingibjörg Eiríksdóttir

Umhverfisstofnun

Friðrik Dagur Arnarson

Kennari og landvörður

Guðmundur Ingi Guðbrandsson

Framkvæmdastjóri Landverndar

 

Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við Edward H. Huijbens, Rannsóknamiðstöð ferðamála, edward@unak.is.

Sjá upptöku af örráðstefnu Rannsóknamiðstöð ferðamála 2014

Sækja upplýsingar um örráðstefnu á pdf.

Tilkynning um örráðstefnu frá Landgræðslu Ríkisins.

Tilkynning um örráðstefnu frá Landgræðslu Ríkisins