Ferðamálastofa auglýsir lausa stöðu starfsnema

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir starfsnema vegna verkefna sem varða öflun og úrvinnslu talnagagna.

Í auglýsingu segir meðal annars um markmið starfsnámsins að það veiti gott tækifæri til fyrstu reynslu í meðferð og úrvinnslu talnagagna auk þess sem það gefi góða mynd af margbreytileika ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar.

Nánari upplýsingar um starfsnámið má finna á vef Ferðamálastofu.