Hengillinn - virkjanir og útivist

Upplifun ferðamanna á Hengilssvæðinu er að það sé mjög náttúrulegt, kyrrt, aðgengilegt, fallegt og áhrifamikið. Þá var afstaða svarenda til virkjana sem eru á svæðinu frekar hlutlaus auk þess sem þeir voru frekar sammála því að virkjun auki möguleika á nýsköpun í ferðaþjónustu og að greinin fari vel saman við virkjun á svæðinu.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu RMF: Viðhorf útivistarfólks og ferðamanna til virkjana á Henglinum
Í skýrslunni, sem unnin er fyrir Orkuveitu Reykjavíkur, segir frá niðurstöðum viðhorfskönnunar meðal gesta á Hengilssvæðinu sumarið 2017.

Meginmarkmið könnunarinnar var öflun gagna um viðhorf tiltekinna notendahópa til framkvæmda og mannvirkja á Henglinum og munu gögnin meðal annars nýtast við framtíðaruppbyggingu OR á svæðinu.

Höfundar skýrslunnar eru Edward H. Huijbens, Eva Halapi og Heiða Aðalsteinsdóttir.