Nýr forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Ferðamála

Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, nýráðinn forstöðumaður RMF
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, nýráðinn forstöðumaður RMF

Rannsóknamiðstöð ferðamála býður nýjan forstöðumann, Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur velkomna til starfa, en hún hefur verið ráðin forstöðumaður frá 15 maí.

Guðrún Þóra hefur aflað sér víðtækrar reynslu og þekkingar á ferðamálum undanfarin 20 ár. Hún er með meistaragráðu (M.B.A.) í stjórnun ferðaþjónustu frá University of Guelph, Ontario í Kanada og meistaragráðu frá University of Oregon, USA í samanburðarbókmenntum.

Guðrún Þóra leiddi uppbyggingu ferðamáladeildar Háskólans á Hólum. Hún var deildarstjóri þar í 13 ár og hefur síðustu 7 árin gegnt starfi lektors við sömu deild. Þá sat hún í sex ár í Vísinda- og tækniráði og var um árabil fulltrúi Íslands í Norrænu Atlantshafsnefndinni (NORA).

Guðrún Þóra mun sinna starfi forstöðumanns í fullu starfi frá 15. maí næstkomandi en í hlutastarfi þangað til.

Fráfarandi forstöðumaður, Kristín Sóley Björnsdóttir, mun sinna starfinu til 1.apríl og í kjölfarið taka við starfi kynningarstjóra hjá Menningarfélagi Akureyrar.

Rannsóknamiðstöð ferðamála þakkar Kristínu Sóleyju fyrir afar vel unnin störf og óskar henni alls hins besta á nýjum vettvangi.