Örráðstefna við HÍ, 24. okt kl. 17.00 - upptaka

Staða þekkingar á ferðaþjónustu

Haldin fimmtudaginn 24. október kl. 17.00-18.00

 Á liðnu ári hafa tvær ítarlegar skýrslur erlendra ráðgjafa komið út um stöðu og horfur í íslenskri ferðaþjónustu, sem og greining GEKON um virðisauka í ferðaþjónustu. Síðsumars kom svo út fyrsta heildstæða ritið um íslensk ferðamál og Ferðamálastofa vann ítarlega greiningu á rannsóknaþörf. Ætla mætti að með þessu sé komin traustur þekkingargrunnur íslenskrar ferðaþjónustu. Á þessari þriðju örráðstefnu Rannsóknamiðstöðvar ferðamála verður spurt hvort svo sé og þá að hvaða leyti. Þannig munu frummælendur leitast við að skýra sína afstöðu til stöðu þekkingar og hvernig það sem komið er geti nýst til framdráttar umræðu um ferðamál á Íslandi.

Fundurinn hefst á örfáum aðfararorðum um tilefni og tilurð fundarins. Þar á eftir munu frummælendur stíga á stokk og í stuttum 5 mínútna glærulausum erindum lýsa sinni afstöðu til stöðu þekkingar. Að því loknu verður opnað fyrir umræður og spurningar og eru aðilar úr greininni sem og fjölmiðlafólk sérstaklega hvatt til að mæta í þágu hreinskiptinnar og opinnar umræðu.

 

Frummælendur á örþingi eru:

 

Stofnun

Dr. Rögnvaldur Ólafsson

Háskóli Íslands, formaður stjórnar RMF

Valgerður Rún Benediktsdóttir

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

Dr. Anna Dóra Sæþórsdóttir

Land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands

Halldór Benjamín Þorbergsson

Icelandair Group

Dr. Hilmar Bragi Janusson

Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands

 

Rúmlega 60 manns mættu á þingið en upptöku af viðburðinum má nálgast hér.