Selatalningin mikla

Fimmtudaginn 21. júlí n.k. fer fram Selatalningin mikla, árlegur viðburður á vegum Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Líkt og sjá má á tilkynningu Selasetursins, hefur setrið að vanda óskað eftir þátttöku sjálfboðaliða við talninguna sem fara mun fram meðfram Vatnsnesi og Heggstaðanesi í Húnaþingi vestra.