Almyrkvi á sólu 2026: Stýring og samhæfing í dreifðum byggðum

Rannsóknamiðstöð ferðamála hlaut styrk frá Byggðarannsóknarstjóði til eins árs fyrir verkefninu Almyrkvi á sólu 2026: Stýring og samhæfing í dreifðum byggðum

Almyrkvi á sólu mun eiga sér stað 12. ágúst næst komandi og ljóst er að búast má við mikilli aðsókn gesta á þeim svæðum þar sem hann gengur yfir. Um er að ræða svæði þar sem innviðir og þjónusta eru skipulögð fyrir daglega notkun en ekki fyrir aðsókn af þessari stærðargráðu. Almyrkvi er landfræðilega afmarkaður náttúruviðburður sem leiðir til þess að margir sækja sömu staði á sama tíma. Slíkar aðstæður skapa tímabundinn þrýsting á vegakerfi, bílastæði, fjarskipti, salernisaðstöðu, neyðarviðbúnað og aðra grunnþjónustu. Fyrir strjálbýl og fámenn sveitarfélög felur þetta í sér áskoranir sem snúa að samhæfingu, forgangsröðun og skýrri verkaskiptingu milli aðila sem fara með ólíka ábyrgð og heimildir.  

Rannsóknin beinist að tveimur landsvæðum; Vesturlandi og Vestfjörðum. Tilgangur rannsóknarinnar er að greina hvernig sveitarfélög og aðrir lykilaðilar stýra aukinni aðsókn þegar fyrirsjáanlegur stórviðburður setur verulegan þrýsting á áfangstaði, innviði og þjónustu í dreifðum byggðum. Leitast verður við að skilja hvernig stýringu og samhæfing móta viðbrögð áfangastaða í þessum aðstæðum og hvaða þættir stuðla að því að kerfið haldi virkni og jafnvægi. 

Aðferðafræði rannsóknarinnar byggir á eigindlegum aðferðum þar sem rannsakendur verða áheyrnafulltrúar á fundum samráðshópa á Vesturlandi og Vestfjörðum í aðdraganda almyrkvans. Auk þess verða tekin viðtöl við lykilaðila sem komu að skipulagningu og framkvæmd að atburði loknum.  

Ása Marta Sveinsdóttir (asamarta@rmf.is), Eyrún Jenný Bjarnadóttir (ejb@rmf.is) og Vera Vilhjálmsdóttir (verav@rmf.is) fara með umsjón verkefnisins.