Ferðamannaleiðir og innviðir: Notkun, aðgengi og árstíðabundnar aðstæður

Dynjandi ©Ása Marta SveinsdóttirRannsóknamiðstöð ferðamála hlaut nýverið styrk úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir verkefninu Ferðamannaleiðir og innviðir: Notkun, aðgengi og árstíðabundnar aðstæður.

Ferðamannaleiðir sem byggja á núverandi vegakerfi hafa á síðustu árum orðið sífellt mikilvægari ferðavara í íslenskri ferðaþjónustu. Slíkar leiðir skapa ný tækifæri til dreifingar ferðamanna en fela jafnframt í sér nýjar áskoranir sem tengjast aðgengi, árstíðabundnum aðstæðum og væntingum til vegakerfis og tengdra innviða.

Tilgangur rannsóknarinnar er tvíþættur. Annars vegar að greina upplifun og ferðir ferðamanna eftir skilgreindum ferðamannaleiðum út frá sjónarhorni notenda. Hins vegar er markmiðið að varpa ljósi á hvernig núverandi staða innviða á leiðunum, svo sem vegakerfi, almenningssamgöngur, rafhleðslustöðvar og upplýsingar, styður eða takmarkar raunhæfi leiðanna sem ferðavöru við mismunandi aðstæður.

Rannsóknin beinist að tveimur skilgreindum ferðamannaleiðum á Íslandi: Norðurstrandarleið og Vestfjarðaleið. Leiðirnar byggja alfarið á vegum sem eru í almennri notkun og fela því ekki í sér nýja innviðauppbyggingu heldur nýja merkingu og notkun á núverandi vegakerfi.

Rannsóknin byggir á blandaðri aðferð. Í fyrsta lagi verður staða lykilinnviða á ferðamannaleiðunum kortlögð út frá fyrirliggjandi gögnum. Í öðru lagi verður spurningakönnun lögð fyrir ferðamenn um ferðir þeirra eftir leiðunum, aðgengi, árstíðabundnar aðstæður og ferðamáta.

Á vef Vegagerðarinnar má lesa frekar um verkefnið.

Ása Marta Sveinsdóttir (asamarta@rmf.is) og Eyrún Jenný Bjarnadóttir (ejb@rmf.is) fara með umsjón verkefnisins.