Viðhorf Íslendinga til ferðamanna og ferðaþjónustu 2026

RMF hefur umsjón með landskönnun á viðhorfum Íslendinga til ferðamanna og ferðaþjónustu fyrir Ferðamálastofu. Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf landsmanna til ferðaþjónustu, áhrif hennar á samfélag og lífsgæði íbúa og hvernig íbúar upplifa þróun ferðaþjónustu í sínu nærumhverfi.

Könnunin er framhald fyrri rannsókna sem gerðar hafa verið frá árinu 2014. Niðurstöðurnar munu gefa yfirsýn yfir viðhorf landsmanna, bæði á landsvísu og eftir landshlutum, og gera kleift að skoða hvernig þau hafa þróast með tímanum. Þær munu jafnframt nýtast við stefnumótun og skipulag ferðaþjónustu á Íslandi.

Gagnaöflun fer fram haustið 2026 og áætlað er að verkefninu ljúki vorið 2027.