Offjölgun ferðamanna: Hvað getum við lært af Barselóna?

Laugardaginn 30. september kl. 9-12 standa Rannsóknamiðstöð ferðamála og ferðamálafræði Háskóla Íslands fyrir opnu málþingi um það hvernig yfirvöld í Barselóna kljást við þau vandamál sem skapast hafa vegna ágangs ferðamanna í borginni og hvaða lærdóm megi draga af því. Yfirskrift málþingsins er: Offjölgun ferðamanna: Hvað getum við lært af Barselóna? Málþingið er haldið í samstarfi við Samtök um ábyrga ferðamennsku og Háskólann í Plymouth. Málþingið verður haldið í Hannesarholti. 

Málþingið mun fara fram á ensku. Þátttökugjald er kr. 2.000. Málþinginu verður streymt beint um Facebook-síðu Hannesarholts.

 

ATH! SKRÁNINGU ER LOKIÐ.

 

Dagskrá

Kl. 9:00-10:05
City governments managing tourism: the case of Barcelona
Harold Goodwin, framkvæmdastjóri Samtaka um ábyrga ferðaþjónustu og prófessor á eftirlaunum hjá Institute of Place Management hjá Manchester Metropolitan University

Barcelona: the management of spaces of major affluence
Albert Arias, framkvæmdastjóri ferðamálaáætlunar Barcelona til 2020

Overtourism and Tourismphobia. Contemporary tourism failure, local protests and resistance in Barcelona
Claudio Milano, sérfræðingur og ráðgjafi hjá Ostelea School of Hospitality and Tourism, Barcelona

 

10:05-10:25 Kaffihlé


10:25-12:00

Pallborðsumræður: Moving forward – what can we learn from Barcelona?
Þátttakendur í pallborði:
            Harold Goodwin
            Albert Arias
            Claudio Milano
            Elsa Yeoman, formaður Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar
            Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
            Rannveig Ólafsdóttir, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands

 

Málþingsstjóri er Dr. Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
Umræðustjórn í pallborði: Dr. John Swarbrooke, Plymouth University