Ferðaleiðir um fámenn svæði. Aðkoma og sýn heimamanna við uppbyggingu ferðamannaleiða

Sléttuvegur ©Þórný Barðadóttir 2022Rannsóknin Ferðaleiðir um fámenn svæði. Aðkoma og sýn heimafólks á uppbyggingu ferðamannaleiða beinir sjónum að samfélagslegum þáttum ferðamannaleiða sem fara um jaðarsvæði íslenskrar ferðaþjónustu. Tilvik rannsóknar er Norðurstrandarleið sem beinir ferðamönnum um hina 900 km löngu strandlengju Íslands. Til rannsóknar voru tvö af fámennustu svæðum leiðarinnar, Vatnsnesi og Melrakkasléttu. Þar fara ferðamenn að hluta um einhver dreifbýlustu svæði landsins og ferðast til þess um jafnt uppbyggða sem fábrotna og lítt viðhaldna malarvegi.

Tilgangur rannsóknar var að fanga sýn heimafólks á tilurð Norðurstrandaleiðar og aðkomu þeirra í aðdraganda markaðsetningar leiðarinnar. Í rannsókninni var jafnframt leitast við að fanga sýn heimafólks á áhrifum og möguleikum leiðarinnar til atvinnuuppbyggingar í ferðaþjónustu og tengdum greinum.

Meginmarkmið rannsóknar var að veita hagnýta þekkingu sem nýtist við uppbyggingu ferðaþjónustu með stuðningi heimafólks í dreifbýlissamfélögum utan alfaraleiða enda hafa rannsóknir sýnt að stuðningur heimafólks er ein meginforsenda þess að vel takist til við uppbyggingu ferðaþjónustu í héraði.

Verkefnið var unnið sumar og haust 2024 í samvinnu við Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) með styrk úr Byggðarannsóknasjóði.

Helstu niðurstöður rannsóknar eru þær að á meðan ekki reyndist hafa verið mikil almenn þátttaka í héraði í aðdraganda og undirbúningi Norðurstrandarleiðar er heimafólk almennt mun fremur jákvætt en neikvætt gagnvart ferðaþjónustu og mögulegri nýtingu leiðarinnar til uppbyggingu ferðaþjónustu í héraði. Hins vegar benda niðurstöður einnig til þess að nokkur óvissa ríki um leiðina auk þess sem heimafólk hefur töluverðar áhyggjur af innviðum svæðanna í tengslum við aukna umferð ferðamanna.

Þetta og ýmislegt fleira forvitnilegt má sjá í niðurstöðuskýrsla rannsóknar sem lesa má hér.

Verkefnisstjóri var Þórný Barðadóttir [thorny @ rmf.is]