Stoðir styrktar – aukin gæði. Mikilvægi öflugrar samvinnu safna og ferðaþjónustunnar

Markmið verkefnisins er að kanna hvert vægi og gildi safna, setra og sýninga er fyrir ferðaþjónustu á Íslandi og þá verðmætasköpun sem verður til með samstarfi beggja aðila, þ.e.a.s. safnageirans og ferðaþjónustunnar.

Þörfin fyrir aukið samstarf er ekki ný af nálinni. Í niðurstöðum rannsóknarinnar Söfn og ferðaþjónusta (2015), sem Rannsóknasetrið í safnafræði vann að beiðni Safnaráðs, kom m.a. fram að ekki væri nægilega mikið litið til “safna og safntengdrar starfsemi í opinberri stefnumótun sem mikilvægra þátttakenda í ferðaþjónustu” og  samstarf á milli safna og ferðaþjónustunnar væri ábótavant. Með verkefninu vilja samstarfsaðilar koma á betra samstarfi milli þessara tveggja hagaðila, safnafólks og ferðaþjónustunnar. Sérstaklega í ljósi þess að það er mikilvægt að söfn, setur og sýningar á Íslandi hafi sterka aðkomu og rödd þegar kemur að vöruþróun í menningarferðaþjónustu svo trúverðugleiki og sanngildi allrar framsetningar sé betur tryggður.

Í tengslum við verkefnið varða haldnar málstofur í fjórum landshlutum þar sem rædd verða mikilvæg málefni tengd samstarfi safna og ferðaþjónustu á svæðinu, vinnustofur og mögulega stutt erindi þar sem fólki gefst tækifæri á að kynna starfsemi sína. Stefnt er að því að halda viðburði á Akureyri, Egilsstöðum, Stykkishólmi og í Reykjavík.

Verkefnið hlaut styrk úr Safnasjóði til eins árs en samstarfsaðilar auk RMF eru Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði, Rannsóknasetrið í safnafræði, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS).

Vera Vilhjálmsdóttir (verav@rmf.is) hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd RMF.