NS34

Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) stendur að undirbúningi alþjóðlegu ferðamálaráðstefnunnar 34th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research sem haldin verður í Reykjavík 6-8. október 2026. 

Ráðstefnan er haldin á hverju hausti og skiptast Norðurlandaþjóðirnar á um að halda hana. Þetta verður í 34. sinn sem hún er haldin og í 5. sinn sem RMF skipuleggur ráðstefnuna. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good?

 

Nánari upplýsingar má nálgast hér á heimasíðu NS34