Aðalfundur RMF fór fram á Akureyri

Stjórn og starfsfólk með rektor HA
Stjórn og starfsfólk með rektor HA

Aðalfundur Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála (RMF) fór fram á Akureyri miðvikudaginn 15. apríl. Dagurinn hófst með morgunverðarfundi með Áslaugu Ásgeirsdóttur rektor Háskólans á Akureyri áður en stjórn og starfsfólk RMF komu saman til aðalfundar. Á fundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf á dagskrá. Ingibjörg Sigurðardóttir, formaður stjórnar, flutti ávarp en Guðrún Þóra Gunnarsdóttir kynnti ársskýrslu RMF og starfsáætlun ársins 2026. Harpa Halldórsdóttir sérfræðingur fjármálagreininga hjá Háskólanum á Akureyri fór yfir ársreikning 2025. Ársskýrslu RMF 2025 má finna hér. 

Á aðalfundinum urðu einnig breytingar á stjórn RMF.  Geir Kristinn Aðalsteinsson tók sæti í stjórn sem fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar í stað Unnar Svavarsdóttur. Stjórn og starfsfólk þakkar Unni fyrir gott samstarf og mikilvægt framlag. Frá áramótum hefur Ingibjörg Sigurðardóttir gegnt hlutverki setts formanns í stað Þórhalls Arnar Guðlaugssonar, sem er í rannsóknarleyfi. Á meðan situr Magnús Haukur Ásgeirsson í stjórn sem fulltrúi Háskóla Íslands.

Í hádeginu snæddu fundargerstir saman á Lyst í Lystigarðinum þar sem leynigesturinn Sigrún Stefánsdóttir, fyrrverandi dósent við Háskólann á Akureyri og leiðsögumaður spjallaði við hópinn um fyrirtæki sitt og reynslu sína af því að taka á móti ferðamönnum á Akureyri. Sigrún er vel kunnug starfsemi RMF en hún sat í stjórn miðstöðvarinnar fyrir hönd Háskólans á Akureyri á árunum 2018-19. 

Eftir hádegi fóru stjórn og starfsfólk RMF í heimsóknir til Markaðsstofu Norðurlands, Ferðamálastofu og Driftar EA þar sem þau fengu innsýn í starfsemi þeirra og helstu verkefni á sviði markaðssetningar Norðurlands sem áfangastaðar, þróunar ferðaþjónustu og stuðnings við frumkvöðla og nýsköpun.

Stjórn og starfsfólk RMF þakkar kærlega fyrir góðar móttökur og áhugaverðar kynningar á Akureyri.