Aðalfundur RMF haldinn á Sauðárkróki
Aðalfundur Rannsóknamiðstöðvar ferðamála (RMF) fór fram þriðjudaginn 3. júní í húsi Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Fyrir fundinn tóku Sigurður Árnason og Hanna Dóra Björnsdóttir, sérfræðingar á þróunarsviði stofnunarinnar á móti stjórn og starfsfólki RMF og kynntu starfsemi og verkefni Byggðastofnunar. Í kjölfarið kynntu Hólmfríður Sveindóttir rektor Háskólans á Hólum og Árni Gunnarsson fulltrúi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hugmyndir um nýja þekkingargarða á Sauðárkróki. Að lokum fluttu þau Áskell Heiðar Ásgeirsson og Ingibjörg Sigurðardóttir frá ferðamáladeild Háskólans á Hólum erindi um rannsóknir í viðburðastjórnun.
Að loknum kynningum var gengið til aðalfundar RMF undir stjórn Þórhalls Arnar Guðlaugssonar formanns stjórnar. Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður RMF kynnti ársskýrslu og starfsáætlun miðstöðvarinnar og Harpa Halldórsdóttir, sérfræðingur fjármálagreininga hjá Háskólanum á Akureyri fór yfir ársreikning 2024. Auk stjórnar og forstöðumanns sátu Ása Marta Sveinsdóttir, Eyrún Jenný Bjarnadóttir og Vera Vilhjálmsdóttir sérfræðingar hjá RMF fundinn.
Ársskýrslu RMF 2024 má finna hér.
Að fundi loknum snæddu fundargestir hádegisverð á Gránu Bistró og heimsóttu sýninguna 1238: Baráttan um Ísland.
Stjórn og starfsfólk RMF þakkar kærlega fyrir hlýjar móttökur og áhugaverðar kynningar á Sauðárkróki.
|
|
|
|
|
|
|
|