Alþjóðleg ferðamálaráðstefna tókst vel í Reykjavík

Ráðstefnan Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research fór fram í Reykjavík dagana 6.–8. október og tókst með miklum ágætum. Um 190 þátttakendur frá 27 löndum komu saman til að ræða ferðaþjónustu í síbreytilegum heimi undir yfirskriftinni Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good?

Ráðstefnan hófst með glæsilegri móttöku í boði Perlunnar þar sem atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson ávarpaði gesti.
Í kjölfarið tóku við tveir viðburðaríkir ráðstefnudagar á Hótel Reykjavík Öskju með 165 erindum í 28 fjölbreyttum málstofum, tveimur pallborðsumræðum og fimm vinnustofum. Aðalfyrirlesararnir Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri, og Henna Konu, prófessor við University of Eastern Finland, hófu hvorn ráðstefnudag með áhugaverðum fyrirlestrum sem vöktu umræður og veittu innblástur.

Kvöldverður á Bryggjuhúsinu hófst á fjörugum tónum frá Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar og síðar um kvöldið skemmti uppistandarinn Ari Eldjárn gestum.

Rannsóknamiðstöð ferðamála þakkar öllum þátttakendum, fyrirlesurum, samstarfsaðilum, styrktaraðilum og öðrum þeim sem komu að skipulagningunni fyrir framlag sitt til vel heppnaðrar ráðstefnu.