Doktorsvörn í ferðamálafræði: Þórný Barðadóttir

Guðrún Þóra og Þórný
Guðrún Þóra og Þórný

Í gær, þann 11. júní 2025 varði Þórný Barðadóttir doktorsritgerð sína í ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Þórný er fimmti nemandinn sem lýkur doktorsprófi í ferðamálafræði frá íslenskum háskóla.

Doktorsritgerð Þórnýjar nefnist Hreyfanleiki Melrakkasléttu: Etnógrafísk rannsókn á staðarmyndun, ferðamálum og öðrum hreyfanleika á jaðarsvæðum (Mobilities in Melrakkaslétta. Ethnographic inquiry into placemaking, tourism and other mobilities on the margin). Í ritgerðinni er fjallað um hvar og hver staðurinn Melrakkaslétta er, hvernig hann hefur þróast og umbreyst í tengslum við meira en-mennskan hreyfanleika. Skoðað er hvernig þessi sami hreyfanleiki hefur áhrif á og myndar miðju og jaðar og áhrif þessa á möguleika fámenns svæðis utan alfaraleiða til uppbyggingar ferðaþjónustu.

Nánar má lesa um verkefnið á vef Háskóla Íslands

Leiðbeinendur Þórnýjar voru dr. Gunnar Þór Jóhannesson og dr. Katrín Anna Lund, prófessorar við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Í doktorsnefnd sat einnig dr. Jo Vergunst dósent við Aberdeen Háskóla í Skotlandi. Andmælendur við vörnina voru dr. Jørgen Ole Bærenholdt prófessor við Háskólann í Hróarskeldu í Danmörku og dr. Anniken Førde prófessor við Norðurslóðaháskólann í Tromsø í Noregi.

Fyrir hönd RMF færði Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðukona Þórnýju blómvönd að lokinni athöfn.