Ferðamál á Norðurslóðum – fjölbreytt útgáfa

 Tímaritið Ferðamál á Norðurslóðum er hægt og bítandi að festa sig í sessi. Nýverið kom út sérhefti um nærandi ferðaþjónustu  og þá hafa verið birtar fjórar greinar í sérhefti International Polar Tourism Research Network (IPTRN) og fleiri munu birtast þegar á líður árið.

Fyrir utan sérheftin hafa nýlega verið birtar greinar annars vegar um sjálfbærni áfangastaða skemmtiferðamennsku á Norðurslóðum og hins vegar um viðhorf og skynjun íbúa á félagslegum áhrifum ferðaþjónustu. Sjá nánar á: https://arctictourism.is/index.php/arctour/index