Fræðsluefni UPLIFT um gagnvirka tækni í ferðaþjónustu
Undanfarin tvö ár hefur RMF, fyrir hönd Háskólans á Akureyri, leitt verkefnið UPLIFT, sem líkur núna í september. Verkefnið hefur snúið að því að efla þekkingu og færni á sviði gagnvirkrar tækni í bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu og styðja ferðaþjónustuaðila, kennara og nemendur við að nýta stafræna tækni og frásagnir til að skapa fjölbreyttari og áhugaverðari upplifun fyrir gesti.
UPLIFT er Erasmus+ samstarfsverkefni sex samstarfsaðila frá Íslandi, Írlandi, Danmörku, Litháen og Slóveníu. Verkefnið hefur sameinað þekkingu á ferðaþjónustu, menntun og tækni og meðal afurða þess eru rannsóknir og dæmi um góða starfshætti, vinnustofur, verkfærakistur, myndbandsfræðsla og leiðbeiningar fyrir kennara og leiðbeinendur.
Nú er allt fræðsluefni komið í loftið og er öllum aðgengilegt á vef UPLIFT. Efnið er sérstaklega hugsað fyrir lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki, kennara og leiðbeinendur, nemendur og aðra hagaðila sem vilja kanna hvernig nýta má frásagnir og gagnvirka tækni á borð við sýndarveruleika (VR), viðbótarveruleika (AR), gervigreind og einfaldari stafrænar lausnir í ferðaþjónustu.
Fjögur fræðslumyndbönd

UPLIFT hefur gefið út fjögur stutt og hagnýt fræðslumyndbönd (Video Lessons) sem byggja meðal annars á vinnustofum verkefnisins í Íslandi, Litháen, Írlandi og Slóveníu. Markmiðið er að gera þekkingu á gagnvirkri tækni aðgengilega og sýna með hagnýtum hætti hvernig hægt er að fara frá hugmynd að framkvæmd. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri tækniþekkingu og áhersla er lögð á aðferðir og verkfæri sem henta einnig minni fyrirtækjum og stofnunum.
Myndböndin fjögur fjalla um markaðssetningu, vörumerki og markmið; notkun VR, AR og XR í ferðaþjónustu; hvernig hægt er að búa til einfalda sýndarveruleikaupplifun; og skapandi notkun QR-kóða. Hægt er að horfa á myndböndin sjálfstætt eða nota þau sem hluta af kennslu, vinnustofum og öðru fræðslustarfi.
Vinnustofur og verkfærakistur

UPLIFT hefur jafnframt þróað fjórar vinnustofur og fjórar verkfærakistur sem hjálpa fyrirtækjum og öðrum hagaðilum að þróa hugmyndir að gagnvirkri bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu. Grunnhugsunin er að gagnvirk upplifun þurfi hvorki að byggjast á dýrum tæknibúnaði né flóknum lausnum. Frásagnir, hljóðefni, QR-kóðar, efni fyrir snjallsíma og ýmiss konar gagnvirkar athafnir geta til dæmis verið leiðir til að auðga upplifun gesta.
Efnið skiptist í fjögur þemu sem leiða notendur frá fyrstu hugmynd að raunhæfri framkvæmd. Fjallað er um mikilvægi gagnvirkrar tækni fyrir fyrirtæki; staðfærslu, vörumerki, markhópa og frásagnir; fjármögnun, kostnað, fjárhagsáætlanir og ábyrga framkvæmd; og loks markaðssetningu og sölu gagnvirkrar bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu gegnum frásagnir. Vinnustofurnar hjálpa notendum að greina tækifæri og áskoranir en verkfærakisturnar styðja þá við að færa hugmyndirnar yfir í raunhæfar aðgerðir og áætlanir.
Efnis er aðgengilegt á ensku, íslensku, litháensku og slóvensku.
Skoða vinnustofur og verkfærakistur UPLIFT
Leiðbeiningar fyrir kennara og leiðbeinendur

Leiðbeiningar fyrir kennara og leiðbeinendur tengir saman fræðsluefni verkefnisins og veitir kennurum og leiðbeinendum hagnýtar leiðbeiningar um hvernig hægt er að nýta það í kennslu og þjálfun. Leiðbeiningarnar eru fyrst og fremst ætlaðar kennurum og leiðbeinendum á sviði ferðaþjónustu og skyldra greina en geta einnig nýst ferðaþjónustufyrirtækjum, leiðsögumönnum, söfnum, menningarstofnunum, áfangastaðastofum og öðrum sem vilja þróa gagnvirka bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu.
Leiðbeiningarnar eru ekki hugsaðar sem fastmótað námsefni heldur sveigjanleg leið í gegnum fræðsluefni UPLIFT. Þar eru meðal annars leiðbeiningar um hvernig velja og samþætta má rannsóknarskýrlu, dæmahefti um góða starfshætti, fræðslumyndbönd, vinnustofur og verkfærakistur eftir þörfum hvers hóps. Einnig fylgja hagnýt verkfæri fyrir kennara og leiðbeinendur, svo sem gátlistar, kennsluáætlanir, verkefnablöð og verkfæri fyrir endurgjöf og ígrundun. Áhersla er lögð á að byrja smátt, byggja á þeim björgum sem þegar eru til staðar og velja tækni sem styður við söguna og upplifunina.
Skoða UPLIFT VET Trainers Guide
Allt fræðsluefni UPLIFT er aðgengilegt á vef verkefnisins (https://uplifttourism.eu/) og er ætlað til áframhaldandi notkunar að verkefninu loknu. Þar má einnig finna rannsóknarskýrslur og safn evrópskra dæma um góða starfshætti á sviði gagnvirkrar bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu.
![]()

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri