Fræðsluferð RMF í Mývatnssveit og nágrenni

Starfsfólk RMF eftir góða slökun í Skógarböðunum
Starfsfólk RMF eftir góða slökun í Skógarböðunum

Starfsfólk Rannsóknamiðstöðvar ferðamála fór í fræðsluferð 14. apríl s.l. í Mývatnssveit og nágrenni sem endaði í Skógarböðunum við Akureyri.

Í ferðinni heimsóttu RMF-liðar Mývatnsstofu og Náttúruverndarstofnun í gestastofunni Gíg, Vogafjós og Svartárkot og fræddist um ferðaþjónustu á svæðinu.

RMF þakkar kærlega fyrir góðar móttökur í blíðviðrinu!