Góð þátttaka á 34th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research
Ráðstefnan 34th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research, sem RMF skipuleggur, hefst á morgun, 6. október. Um 190 þátttakendur frá 27 löndum taka þátt, flestir fræðimenn í ferðamálum auk fulltrúa úr ferðaþjónustunni.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good? og verður meðal annars rætt um hlutverk ferðaþjónustunnar í síbreytilegum heimi, ólíkar áskoranir og hvernig greinin getur brugðist við þeim breytingum sem fram undan eru. Á dagskrá eru 28 málstofur, fimm vinnustofur og tvær pallborðsumræður.
Ráðstefnan hefst með opnunarathöfn í boði Perlunnar, þar sem Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, flytur meðal annarra ávarp. Á miðvikudagsmorgun færist dagskráin svo yfir á Hótel Reykjavík Öskju, þar sem Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, býður gesti velkomna til Reykjavíkur. Þar tekur við tveggja daga dagskrá sem lýkur síðdegis á fimmtudag.
Aðalfyrirlesararnir eru Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri, og Henna Konu, prófessor við University of Eastern Finland, Business School.
Samhliða ráðstefnunni stendur yfir tveggja daga námskeið fyrir doktorsnema í umsjón námsbrautar í land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Námskeiðið hófst í morgun og gefur doktorsnemum tækifæri til að vinna með hugmyndir sínar, fá endurgjöf og kynnast öðrum fræðimönnum á sviði ferðamála.
Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research er haldin árlega að hausti og skiptast Norðurlöndin á að hýsa ráðstefnuna. Hún er hluti af starfi Nordic Society for Tourism and Hospitality Research (NORTHORS), sem er vettvangur fyrir fræðilega umræðu, miðlun rannsókna og þróun þekkingar á sviði ferðaþjónustu í Evrópu. Rannsóknamiðstöð ferðamála á sæti í stjórn samtakanna fyrir hönd Íslands.

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri