Heimsókn frá Susquehanna háskóla í Bandaríkjunum

Í síðustu viku sótti hópur bandarískra nemenda RMF heim og fékk fyrirlestur um ferðaþjónustu á Íslandi sem Guðrún Þóra, forstöðumaður RMF hélt.

Um er að ræða nemendur frá Susquehanna háskólanum í Pennsylvania sem taka þverfræðilegt námskeið um Ísland og íslenska menningu. Námskeiðið hefst á sjö vikna undirbúningsnámskeiði áður en haldið er til Íslands í tveggja vikna vettvangsferð um Ísland þar sem nemendur sitja fyrirlestra um fjölbreytt viðfangsefni og skoða þekkta sögustaði og náttúruperlur. Að lokum sitja þeir annað sjö vikna námskeið þar sem unnið er úr Íslandsferðinni.

Það er vettvangsakademían Svartárkot, náttúra og menning sem hefur veg og vanda að skipulagningu námskeiðsins hér á Íslandi og hafa nemendahópar frá Susquehanna háskólanum komið hingað um árabil.