Kynningarfundur á Íslandsstofu á Akureyri:

Íslandsstofa og Samtök atvinnurekenda á Akureyri (SATA) bjóða til kynningarfundar mánudaginn 11 maí nk. Fundurinn fer fram á veitingahúsinu Greifanum á Akureyri kl. 12-13 og eru allir velkomnir.

Á fundinum munu Vilborg Einarsdóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu, og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri gera grein fyrir starfsemi Íslandsstofu og segja frá þeirri þjónustu sem stofan veitir. Þá munu fulltrúar frá stjórn SATA stjórna umræðum.

Kynningarfundurinn er haldinn í tengslum við ferðalag stjórnar Íslandsstofu um Akureyri 11. maí þar sem þau munu kynnast atvinnulífi og menningu höfuðstaðar Norðurlands. 

Nánari upplýsingar um fundinn veitir stjórn SATA á netfanginu sata@sata.is

http://www.islandsstofa.is/vidburdir/hvad-getur-islandsstofa-gert-fyrir-thig---kynningarfundur-a-akureyri-/878

 

Hlökkum til að sjá sem flesta!

 

Íslandsstofa og Samtök atvinnurekenda á Akureyri