Lokaráðstefna UPLIFT haldin í Maribor
Alþjóðleg lokaráðstefna UPLIFT verkefnisins – Unlocking the Future of Immersive Literary and Film Tourism fór fram í Maribor í Slóveníu þann 8. september síðastliðinn. Á ráðstefnunni komu saman sérfræðingar, rannsakendur og hagaðilar úr ferðaþjónustu til að ræða framtíð gagnvirkrar tækni og upplifunar í bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu í Evrópu, bæði á staðnum og á netinu.
Vera Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur Rannsóknamiðstöðvar ferðamála (RMF), tók þátt í ráðstefnunni fyrir hönd RMF. Hún bauð þátttakendur velkomna í upphafi ráðstefnunnar og kynnti UPLIFT-verkefnið, markmið þess og helstu áherslur. Vera tók jafnframt þátt í pallborðsumræðum með öðrum sérfræðingum þar sem rætt var um framtíð gagnvirkrar tækni og upplifunar fyrir ferðaþjónustu í Evrópu.
Bókmenntir, kvikmyndir og ferðaþjónusta
Tveir aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar fjölluðu um tækifæri sem felast í tengingu bókmennta, kvikmynda, frásagna og ferðaþjónustu. Dr. Noëlle O’Connor frá Technological University of the Shannon á Írlandi flutti erindið The Future of Film and Literary Tourism, þar sem hún fjallaði um þróun og framtíðarmöguleika kvikmynda- og bókmenntaferðaþjónustu.
Prof. Dr. Jasna Potočnik Topler frá University of Maribor flutti erindið Slovene Writers’ Route: Connecting Literature and Tourism. Þar fjallaði hún um hvernig nýta má bókmenntaarf og frásagnir til að þróa innihaldsríka og eftirminnilega upplifun fyrir ferðamenn.
Á ráðstefnunni var einnig miðlað reynslu og hugmyndum sem komu fram á vinnustofum UPLIFT sem haldnar voru á Íslandi, Írlandi, í Litháen og Slóveníu. Yixuan Lu, doktorsnemi við safnafræði HÍ, tók þátt fyrir hönd Íslands og sagði frá því sem hún hafði tekið með sér frá vinnustofunni sem haldin var síðasta vor. Hún tengdi einnig þemu vinnustofunnar við verkefnið sitt, en hún er að rannsaka upplifun kínverskra ferðamanna á söfnum á Íslandi. Dagskránni lauk með alþjóðlegum pallborðsumræðum undir yfirskriftinni The Future of Immersive Tourism in Europe.

Þátttakendur og skipuleggjendur ráðstefnunnar (mynd Catherine Neill)
UPLIFT – frá hugmyndum að hagnýtum lausnum
UPLIFT er Erasmus+ samstarfsverkefni sem miðar að því að efla þekkingu og færni á sviði gagnvirkrar og upplifunarmiðaðrar bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu. Verkefnið leggur áherslu á hvernig nýta má stafrænar lausnir, frásagnir og fjölbreyttar aðferðir til að skapa lifandi og eftirminnilega upplifun fyrir gesti.
Í verkefninu hafa meðal annars verið þróuð fræðsluefni, vinnustofur og hagnýt verkfæri sem nýtast ferðaþjónustufyrirtækjum, kennurum og öðrum sem vilja þróa upplifun tengda bókmenntum og kvikmyndum. Rannsóknamiðstöð ferðamála leiðir verkefnið og hefur tekið virkan þátt í rannsóknar-, fræðslu- og miðlunarstarfi.
Hægt er að nálgast frekari upplýsinga um UPLIFT á heimasíðu þess, ásamt því að skoða allt fræðsluefnið sem gefið hefur verið út í tengslum við verkefnið - en það er aðgengilegt öllum að kostnaðarlausu: https://uplifttourism.eu/

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri