Lykillinn að sjálfbærri þróun ferðamannastaða: Málstofa í Hörpu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið í samstarfi við Seðlabanka Íslands og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stendur fyrir málstofu um stöðu ferðaþjónustunnar. Málstofan ber heitið Hver er lykillinn að sjálfbærri þróun ferðamannastaða á Íslandi? Málstofan verður haldin þriðjudaginn 27. júní kl. 14-16 í Kaldalóni í Hörpu.

Tilefni málstofunnar er að vikunni kynnir OECD nýja skýrslu um efnahagsmál þar sem finna má sérstaka umfjöllun um stöðu ferðaþjónustunnar.

Málstofan fer fram á ensku og hún er öllum opin.

 

Dagskrá

Opnunarávarp
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála

Sustainable Management of Productive Natural Capital
Julien Daubanes, Assistant Professor, University of Copenhagen

Towards sustainable development of Icelandic tourism: How scientific knowledge about the nature of nature-based tourism can help to protect the natural resource
Dr. Gunnþóra Ólafsdóttir, landfræðingur, Rannsóknamiðstöð ferðamála og gestarannsakandi við Háskólann í Exeter og Háskólann í Lúxemborg

Pallborð
Julien Daubanes
Gunnþóra Ólafsdóttir
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
Douglas Sutherland hagfræðingur OECD
Jane Stacey, ferðamálasérfræðingur OECD

Lokaávarp
Mari Kiviniemi, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD

Fundarstjóri: Edda Hermannsdóttir, hagfræðingur.

 

Nánari upplýsingar á vef fjármálaráðuneytisins og á Facebook.