Menning og ferðaþjónusta á Vesturlandi – opin vinnustofa um aukið samstarf
Á morgun, þriðjudaginn 17. nóvember verður haldin opin vinnustofa á Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem sjónum verður beint að tækifærum og áskorunum í samstarfi safna, menningarstofnana og ferðaþjónustunnar á Vesturlandi. Viðburðurinn fer fram kl. 10:00–15:00 og er öllum áhugasömum opinn.
Markmið vinnustofunnar er að skapa vettvang fyrir samtal og hugmyndaskipti milli þessara tveggja geira, efla gagnkvæman skilning og kanna leiðir til aukins samstarfs. Á dagskrá verða pallborðsumræður um áskoranir og tækifæri til samstarfs innan svæðisins, auk hagnýts fyrirlesturs um markaðssetningu menningarstofnana. Að lokum gefst þátttakendum tækifæri til að mynda ný tengsl og ræða möguleg samstarfsverkefni á sérstökum hraðstefnumótum.
Vinnustofan er hluti af verkefni sem miðar að því að styrkja tengsl safna og ferðaþjónustunnar og stuðla að aukinni samvinnu og sjálfbærri þróun menningartengdrar ferðaþjónustu á Íslandi.
Að viðburðinum standa Rannsóknarsetrið í safnafræði, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS), Síldarminjasafnið á Siglufirði og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
Þátttaka er ókeypis en óskað er eftir skráningu.
Öll sem starfa innan safna, menningarstarfsemi og ferðaþjónustu, eða hafa áhuga á auknu samstarfi þessara geira, eru hvött til að taka þátt.

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri