Norrænufarþegar dvelja lengur og ferðast víðar um landið

Út er komin ný skýrsla um erlenda ferðamenn sem ferðast til Íslands með Norrænu. Skýrslan, Norrænufarþegar á vegum landsins 1996–2025: samanburður við flugfarþega, var unnin í samstarfi við Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar og styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Í rannsókninni er sjónum beint að ferðamönnum sem koma til landsins með Norrænu til Seyðisfjarðar og ferðahegðun þeirra borin saman við ferðamenn sem koma með flugi.

Þrátt fyrir að langflestir erlendir ferðamenn komi til landsins um Keflavíkurflugvöll gegna ferjufarþegar mikilvægu hlutverki.

Niðurstöður skýrslunnar sýna að Norrænufarþegar eru almennt vel undirbúnir og nýta dvöl sína til að ferðast víða um landið. Meðaldvalarlengd þeirra er um tvöfalt lengri en hjá sumarferðamönnum sem koma með flugi.

Langflestir Norrænufarþegar ferðast á eigin vegum og hafa eigið ökutæki til umráða. Þeir gista mikið á tjaldsvæðum og hafa því töluverðan sveigjanleika til að ferðast um landið. Þeir aka að jafnaði um 1.000 kílómetrum meira innanlands en ferðamenn sem koma með flugi og heimsækja afskekktari svæði.

Ferðamynstur þeirra getur því stuðlað að dreifingu ferðamanna á minna heimsótt svæði og skapað þar aukin efnahagsleg tækifæri.

Hlekkur á skýrslu hér.