Ný skýrsla: Gestir á söfnum og sýningum í Reykjavík veturinn 2025–2026
RMF hefur gefið út nýja skýrslu, Survey Among Museum Guests in Three Museums & Exhibitions in Reykjavík, Winter 2025/26 – Pilot Study, en verkefnið var unnið í samstarfi við Visit Reykjavík og Rannsóknasetur skapandi greina. Rannsóknin var framkvæmd á tímabilinu nóvember 2025 til apríl 2026 og byggir á svörum 262 gesta á Þjóðminjasafni Íslands, Landnámssýningunni og Listasafni Íslands. Þessi forannsókn var hluti af starfsnámi Rike Nissen hjá RMF undir handleiðslu Veru Vilhjálmsdóttur, sérfræðingi hjá RMF.
Hægt er að nálgast skýrsluna og allar niðurstöður hennar HÉR.
Markmið rannsóknarinnar var að afla betri þekkingar á ferðavenjum, áhugamálum, hvötum og upplifun gesta sem heimsækja söfn og sýningar í Reykjavík. Skýrslan veitir innsýn í hlutverk menningartengdrar ferðaþjónustu í höfuðborginni og hvernig söfn og sýningar falla inn í heildarupplifun ferðamanna á Íslandi.
Niðurstöðurnar sýna að gestahópurinn var almennt vel menntaður og svarendur voru að mestu á aldrinum 25–44 ára. Flestir af erlendu gestunum voru í sinni fyrstu heimsókn til Reykjavíkur og heimsókn á safn var gjarnan hluti af fjölbreyttri ferðaupplifun sem einnig fól í sér heimsóknir í náttúruböð, norðurljósaferðir og aðra afþreyingu.
Rannsóknin sýnir jafnframt að gestir eru almennt mjög ánægðir með safnaheimsóknir sínar. Sérstaklega var jákvætt mat lagt á fræðslugildi safnanna, aðgengi, fjölskylduvænleika og skemmtanagildi. Margir gestir lögðu áherslu á mikilvægi gagnvirkra og upplifunarmiðaðra þátta og bentu niðurstöðurnar til þess að samspil fræðslu og afþreyingar sé lykilatriði í jákvæðri upplifun safnagesta. Þá kom fram að flestir gestir uppgötvuðu söfnin í gegnum netleit eða Google Maps, sem undirstrikar mikilvægi sterkrar stafrænnar sýnileika fyrir menningarstofnanir.
Skýrslan er fyrsta skref í frekari rannsóknum á menningarferðamennsku í Reykjavík og getur nýst söfnum, áfangastofum og öðrum hagaðilum við þróun þjónustu og upplifunar fyrir gesti.

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri