Ný vefsíða RMF

Rannsóknamiðstöð ferðamála hefur látið vinna nýja heimasíðu sem fer í loftið 15. ágúst. Er allt það efni sem var á fyrri síðu þar að finna en búið að laga útlit og gera mögulegt að síðan opnist á ólíkum tölvum, spjaldtölvum og farsímum einnig. Eftir að hún er komin í loftið verða einhverjir smávægilegir hnökrar eftir því hvaða vafri er notaður til að skoða síðuna. Þetta verður lagað á næstu vikum, en einnig eru allar ábendingar vel þegnar um slíka hnökra og mögulega efni sem fólk mundi vilja sjá á síðunni. Vinsamlegast sendið slíkt á forstöðumann RMF; Edward H. Huijbens, edward@unak.is