Nýtt fræðsluefni UPLIFT: Fjögur myndbönd um gagnvirka ferðaþjónustu

Hvernig er hægt að nýta sýndarveruleika, viðbótarveruleika, gervigreind eða einfaldlega QR-kóða til að skapa áhugaverðari upplifun fyrir ferðamenn? Og hvernig geta lítil ferðaþjónustufyrirtæki tekið fyrstu skrefin án mikillar tæknikunnáttu eða kostnaðar?

UPLIFT-verkefnið hefur nú gefið út nýtt fræðsluefni í formi fjögurra myndbanda þar sem farið er á aðgengilegan og hagnýtan hátt yfir hvernig nýta má stafrænar og gagnvirkar lausnir í bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu. Fræðsluefnið byggir meðal annars á vinnustofum UPLIFT sem haldnar voru á Íslandi, Írlandi, í Litháen og Slóveníu.

Myndböndin eru sérstaklega ætluð litlum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum, kennurum og nemendum í ferðaþjónustu, leiðsögumönnum, áfangastaðastofum og öðrum sem vilja kynnast möguleikum gagnvirkrar ferðaþjónustu. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri tæknikunnáttu og lögð er áhersla á raunhæfar lausnir sem hægt er að prófa með litlum tilkostnaði.

Myndböndin fjögur taka hvert fyrir sig á ólíkum þáttum við þróun gagnvirkrar upplifunar. Fyrsta myndbandið fjallar um markaðssetningu, vörumerki og markmið og hvernig tengja má nýja upplifun við réttan markhóp og skýr markmið. Annað myndbandið fjallar um VR, AR og XR í ferðaþjónustu og hvernig velja má tækni út frá þeirri upplifun og sögu sem ætlunin er að miðla – frekar en að láta tæknina sjálfa stýra ferðinni.

Í þriðja myndbandinu er farið skref fyrir skref í gerð einfaldrar VR-upplifunar, meðal annars með 360° myndum, gervigreind og ókeypis eða ódýrum verkfærum. Fjórða myndbandið fjallar síðan um skapandi notkun QR-kóða og hvernig hægt er að tengja staði við myndbönd, hljóðefni, ljósmyndir, sögur og annað stafrænt efni. Þannig getur einfaldur QR-kóði til dæmis opnað atriði úr kvikmynd á tökustað eða frásögn persónu á stað sem tengist bókmenntaverki.

Fræðsluefnið má horfa á í heild sinni sem leið frá stefnumótun yfir í hagnýta framkvæmd, en hvert myndband stendur einnig sjálfstætt. Megináherslan er á að tæknin sé verkfæri til að styðja við góða sögu, stað og upplifun – ekki markmið í sjálfu sér.

Kynntu þér fræðsluefnið og horfðu á myndböndin fjögur á vef UPLIFT:
UPLIFT – Video Lessons