Nýtt verkefni: Hringrásarmiðaðar lausnir í ferðaþjónustu - CIRCULATOUR

Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) tekur þátt í nýju verkefni sem rannsakar hringrásarmiðaðar lausnir í ferðaþjónustu. Verkefnið ber heitið Circular, low-waste and resource-smart tourism for NPA communities - CIRCULATOUR og er styrkt af Interreg áætlun Evrópusambandsins, The Northern Periphery and Arctic (NPA).

CIRCULATOUR er samstarfsverkefni sjö stofnana og félaga á NPA svæðinu og markmið þess er að stuðla að sjálfbærari ferðaþjónustu með því að þróa og prófa lausnir sem bæta stjórnun ferðamanna, minnka auðlindanotkun og hjálpa ferðaþjónustunni að aðlagast breyttum aðstæðum í tengslum við loftlagsbreytingar. Á verkefnistímanum er stefnt að því meðal annars að þróa spálíkan fyrir ferðamannaflæði og útbúa svo kölluð snjöll áfangastaðakort með áherslu á hringrásarhagkerfið. Niðurstöðurnar geta nýst jafnt stjórnvöldum, áfangastaðastofum sem og litlum og meðalstórum fyrirtækjum og ferðamönnum.

Finnar (South-Eastern Finland University of Applied Sciences) leiða verkefnið en auk Íslands (RMF) taka einnig Grænlendingar, Svíar og Írar þátt. Heildarkostnaður verkefnisins er 1.249 þús. evrur og þar af er íslenski hlutinn 183 þús. evrur. Verkefnistíminn er 30 mánuðir.

Fulltrúar RMF í CIRCULATOUR eru þau Ása Marta Sveinsdóttir og Dr. Johannes Welling, rannsakendur en tengiliður verkefnisins á Íslandi er Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður: gudrunthora@unak.is Samstarfsaðili RMF í verkefninu er Markaðsstofa Suðurlands.

Frekari upplýsingar um verkefnið veitir Teija Rautiainen, verkefnisstjóri: Teija.Rautiainen@xamk.fi