Opnað fyrir skráningu og innsendingu ágripa á NS34

Opnað hefur verið fyrir skráningu og innsendingu ágripa á alþjóðlegu ferðamálaráðstefnuna 34th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research, sem haldin verður í Reykjavík 6-8. október 2026.
 
RMF stendur að undirbúningi ráðstefnunnar í ár en Norðurlandaþjóðirnar skiptast á að halda hana á hverju hausti. Ráðstefnan er hluti af starfi samtakanna Nordic Society for Tourism and Hospitality Research (NORTHORS) og er vettvangur fræðilegrar umræðu vísindamanna og þróunar á sviði ferðaþjónustu í Evrópu. Innan samtakanna eru helstu sérfræðingar á sviði ferðamálarannsókna á Norðurlöndunum. Þar á meðal vísindamenn, ráðgjafar, opinberar stofnanir og framhaldsnemar. RMF situr í stjórn samtakanna fyrir Íslands hönd.
 
Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good?
 
Hægt er að skrá sig og senda inn ágrip í gegnum vefsíðu ráðstefnunnar.