Poppmenning í ferðaþjónustu (OUTPACE)

Rannsóknamiðstöð ferðamála er aðili að nýju evrópsku samstarfsverkefni um áhrif og nýtingu poppmenningar í ferðaþjónustu - OUTPACE.

Um er að ræða tveggja ára verkefni (2019-2021) sem fjármagnað er af ESB Erasmus+ styrkjaáætluninni og koma samstarfsaðilar verkefnisins frá menntastofnunum og fyrirtækjum í fimm löndum: Litháen, Bretlandi, Írlandi, Svíþjóð og Íslandi. Gedimino tækniháskólinn í Vilnius (VGTU) leiðir verkefnið.

Sífellt algengara er að nýir áfangastaðir líti dagsins ljós vegna tengsla þeirra við poppmenningu: sjónvarp, kvikmyndir og tónlist. Þó er ljóst að ýmis vannýtt tækifæri eru á þessu sviði ferðaþjónustunnar. Markmið OUTPACE er að vekja athygli á því hvernig poppmenning getur stuðlað að nýsköpun og vöruþróun í ferðaþjónustu.

Verkefnisstjóri íslenska hluta verkefnisins er Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður RMF en auk hennar vinna Elísabet Ögn Jóhannsdóttir og Vera Vilhjálmsdóttir, sérfræðingar RMF, að verkefninu.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins https://www.popculturetourism.eu/