RETURN-verkefnið tekur þátt í málþingi um gjaldskyldu 17. febrúar nk.

Þriðjudaginn 17. febrúar nk. fer fram opið málþing í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi undir yfirskriftinni Gjaldtaka á ferðamannastöðum - hlutverk, ábyrgð, réttindi, skyldur. Þar verður gjaldtaka á ferðamannastöðum tekin til umræðu frá ólíkum sjónarhornum. Fjallað verður sérstaklega um beina gjaldtöku, með áherslu á ramma, ábyrgð, réttindi, skyldur og framkvæmd, gagnvart stjórnsýslu, rekstraraðilum, nærsamfélagi og gestum.

RETURN-verkefnið tekur þátt í málþinginu og kynnir verkefnið og áherslur þess í tengslum við gjaldtöku, stjórnun og nýtingu ferðamannastaða. Á dagskrá eru stutt erindi frá fulltrúum ríkis, sveitarfélags, opinberra stofnana, landeigenda og ferðaþjónustu, auk pallborðsumræðu þar sem sjónarmið eru dregin saman. Málþingið er haldið í samstarfi Markaðsstofu/Áfangastaðastofu Vesturlands, RETURN-verkefnisins, Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Svæðisgarðsins/Vistvangs á Snæfellsnesi.

Staður: Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi
Dagur: Þriðjudagurinn 17. febrúar
Tími: 13:00–16:00

Dagskrá málþingsins 

13:00–13:15 | Inngangur

  • Aðdragandi og markmið málþingsins – Margrét Björk Björnsdóttir
  • Stutt kynning á RETURN-verkefninu - Guðrún Þóra Gunnarsdóttir

13:15–14:15 | Erindi (15 mín hvert)

  • Kolbeinn Árnason, skrifstofustjóri, skrifstofa auðlinda, Atvinnuvegaráðuneytið
  • Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar
  • Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar
  • Ragnhildur Sigurðardóttir, þjóðgarðsvörður, Snæfellsjökulsþjóðgarðs
  • Kaffihlé

14:30–15:00 | Erindi (15 mín hvert)

  • Þorgrímur Guðmundsson, landeigandi og selabóndi, Ytri-Tungu
  • Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures

15:00–15:45 | Pallborðsumræða

  • Umsjón: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála

15:45–16:00 | Samantekt og lokaorð

 

Málþingið er öllum opið en skráning er nauðsynleg. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna á vef Markaðsstofu Vesturlands.