RMF á upphafsfundi nýrra Erasmus+ samstarfsverkefna
22.09.2026
Guðrún Þóra, Vera (RMF) og Jan Alexendar van Nahl (HÍ) ásamt starfsfólki Landskrifstofu. (Mynd: Rannís)
Á dögunum sóttu þær Guðrún Þóra og Vera verkefnisstjórafund nýrra Erasmus+ samstarfsverkefna sem Rannís stóð fyrir á Hótel Reykjavík Öskju þann 15. september síðastliðinn, en RMF mun leiða nýtt samstarfsverkefni, C-Rural, sem hefst 1. desember næstkomandi.
Á fundinum komu saman fulltrúar nýrra samstarfsverkefna til að fræðast um framkvæmd verkefnanna, fara yfir reglur og samninga og efla tengsl við aðra styrkþega. Fundurinn markaði upphaf nýs tímabils alþjóðlegs samstarfs á sviði menntunar og þjálfunar.
Nánar má lesa um fundinn í frétt Rannís.

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri