Spennandi málþing um gagnvirka tækni í ferðaþjónustu
Það er okkur sönn ánægja að bjóða þér á alþjóðlegt málþing UPLIFT – Unlocking the Future of Immersive Literary and Film Tourism, sem haldið verður 8. september 2026 í Maribor í Slóveníu og jafnframt í streymi á netinu.
Málþingið byrja kl 12:00 að íslenskum tíma og líkur kl. 14:30.
Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig HÉR.
Aðalfyrirlesarar málþingsins eru:
Dr. Noëlle O’Connor – Framtíð kvikmynda- og bókmenntaferðaþjónustu
Dr. Noëlle O’Connor frá Technological University of the Shannon á Írlandi er alþjóðlega viðurkenndur rannsakandi á sviði ferðaþjónustu og sérfræðingur í kvikmyndatengdri ferðaþjónustu, mörkun áfangastaða og menntun í ferðaþjónustu. Í erindi sínu mun hún fjalla um þróun og framtíðartækifæri á mótum kvikmynda, bókmennta, sagnamiðlunar og ferðaþjónustu.
Próf. Dr. Jasna Potočnik Topler – Slovene Writers’ Route: Tenging bókmennta og ferðaþjónustu
Próf. Dr. Jasna Potočnik Topler frá Háskólanum í Maribor er prófessor í ferðaþjónustu. Þverfaglegar rannsóknir hennar tengja saman ferðaþjónustu, bókmenntir, menningararf, sagnamiðlun, miðlun og sjálfbæra þróun ferðaþjónustu. Í erindi sínu mun hún sýna hvernig nýta má bókmenntaarf og sögur til að skapa innihaldsríka og eftirminnilega upplifun fyrir ferðamenn.
Auk aðalfyrirlestranna verða kynntar hvetjandi reynslusögur frá UPLIFT-vinnustofum á Íslandi, Írlandi, Litháen og í Slóveníu. Að þeim loknum tekur við alþjóðlegur pallborðsfundur sérfræðinga um framtíð upplifunarferðaþjónustu í Evrópu.
Ráðstefnan á sérstaklega erindi við fagfólk og lítil og meðalstór fyrirtæki í ferðaþjónustu, áfangastaðastofur, leiðsögumenn, söfn og menningarstofnanir, kennara og leiðbeinendur, nemendur og rannsakendur, sem og aðra sem hafa áhuga á framtíð ferðaþjónustu og stafrænni nýsköpun.
Ráðstefnan fer fram á ensku.


Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri