Starfsfólk RMF á NS34
Starfsfólk Rannsóknamiðstöðvar ferðamála (RMF) tók þátt í 34. Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research sem haldin var í Reykjavík dagana 6.–8. október. Starfsfólk miðstöðvarinnar kom að skipulagningu þriggja málstofa auk þess að kynna eigin rannsóknir.
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir tók þátt í skipulagningu málstofu um gjaldtöku á ferðamannastöðum þar sem meðal annars var fjallað um bílastæðagjöld, aðgengi að náttúru og ráðstöfun tekna. Þar flutti hún einnig erindi ásamt Johannes Welling um gjaldtöku í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli í tengslum við RETURN-verkefnið.
Guðrún Þóra og Ása Marta Sveinsdóttir voru jafnframt meðal skipuleggjenda málstofu um nærandi menningarferðaþjónustu og hlutverk hennar í samfélögum á norðurslóðum.
Eyrún Jenný Bjarnadóttir tók þátt í skipulagningu málstofu um akstursferðamennsku í dreifbýli en málstofan var á vegum rannsóknanets um akstursferðamennsku.
Vera Vilhjálmsdóttir flutti erindi um samstarf safna og ferðaþjónustu á Íslandi og kynnti fyrstu niðurstöður úr vinnustofum sem haldnar voru á Norður- og Austurlandi vorið 2026.

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri