Þjóðareign - Málþing um auðlindir Íslands

Dagskrá:

Guðmundur Hörður Guðmundsson formaður Landverndar býður gesti velkomna. Fundarstjórar: Þórarinn Eyfjörð og Stefán Jón Hafstein. Boðið verður upp á fyrirspurnir og umræður úr sal.

  • Hve mikils virði eru auðlindir í almannaeigu? Sigurður Jóhannesson hagfræðingur.
    Viðskipti á markaði gefa hugmynd um verðmæti sumra þeirra auðlinda sem teljast vera í almannaeigu á Íslandi, en virði annarra er nánast óþekkt. Farið verður yfir það mat sem þekkt er og rætt um álitamál í því samhengi. Jafnframt verður rætt hvernig virða mætti þær auðlindir sem ekki hafa enn verið metnar til fjár.
     
  • Skilvirk auðlindastjórnun - hvernig samræmum við ólík hlutverk ríkisins? Daði Már Kristófersson auðlindahagfræðingur.
    Ísland er eitt auðlindaríkasta land í heimi. Auðlindir liggja til grundvallar öllum megin útflutningsatvinnuvegum þjóðarinnar; auðlindir sjávar, orkuauðlindir og stórbrotin náttúra. Ríkið fer með stór og oft illsamræmanleg hlutverk sem reglunar-, eftirlits-, vöktunar-, framkvæmda- og nýtingaraðili og sem eigandi þessara auðlinda. Mikilvægt er að skilja milli hlutverka ef tryggja á að eðlilegt tillit sé tekið til ólíkra hagsmuna - sérstaklega að hagsmunir ríkisins sem eiganda auðlinda séu ekki fyrir borð bornir.
     
  • Hvers vegna er auðlindaákvæði í stjórnarskrá mikilvægt? Svanfríður Jónasdóttir fyrrverandi alþingismaður.
    Tvær auðlindanefndir og stjórnlagaráð lögðu til að sett yrði ákvæði í stjórnarskrá um þjóðareign á auðlindum. Mikill meirihluti þjóðarinnar er því samþykkur. Í erindinu verður mikilvægi þessa lýst.

  • Stutt kaffihlé kl. 15:00

  • Auðlindir og spilling á Íslandi? Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur.
    Í erindinu er gerður greinarmunur á spillingu, spillingarhvötum og spillingarhættum. Fjallað verður um birtingarmyndir spillingar samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu á spillingu, spillingu í þeim skilningi sem nýlegar rannsóknir innan stjórnsýslu vestrænna ríkja hafa skilgreint og kalla “hina nýju tegund spillingar”. Varpað verður ljósi á þær aðstæður í vestrænum lýðræðisríkjum þar sem slík spilling fær þrifist og að lokum dregnar upp ýmsar birtingarmyndir spillingar á Íslandi í tengslum við opinbera umræðu og aðgerðir er lúta að nýtingu auðlinda þjóðarinar að meta þetta.

  • Arður af náttúruauðlindum, hver nýtur hans? Indriði H. Þorláksson, hagfræðingur og fyrrverandi ríkisskattstjóri.
    Hvert rennur arður af þeim auðlindum sem nýttar eru í atvinnurekstri á Íslandi? Nýtur þjóðin sem eigandi auðlindanna arðs í samræmi við það?