Áhugaverðar vinnustofur um samstarf menningar og ferðaþjónustu
Í nóvember voru haldnar tvær vinnustofur um samstarf safna, menningarstofnana og ferðaþjónustunnar, annars vegar í Reykjavík fyrir höfuðborgarsvæðið 10. nóvember og hins vegar í Borgarnesi fyrir Vesturlandið 17. nóvember. Vinnustofurnar voru hluti af verkefninu Stoðir styrktar – aukin gæði. Mikilvægi öflugrar samvinnu menningar og ferðaþjónustu, sem hlaut styrk úr Safnasjóði til eins árs.
Markmið vinnustofanna var að leiða saman fólk úr safna- og menningargeiranum og ferðaþjónustunni til að skapa vettvang fyrir samtal og hugmyndaskipti og kanna leiðir til að efla samstarf þessara tveggja geira. Á dagskrá vinnustofanna voru meðal annars pallborðsumræður um helstu áskoranir og tækifæri til samstarfs, auk þess sem þátttakendum gafst tækifæri til að mynda ný tengsl og ræða möguleg samstarfsverkefni.
Á báðum vinnustofum sköpuðust góðar og áhugaverðar umræður þar sem þátttakendur deildu reynslu sinni og sjónarmiðum. Rætt var um mikilvægi aukins samtals og gagnkvæms skilnings, hvernig nýta mætti betur tækifæri til samstarfs og hvernig söfn og menningarstofnanir gætu gegnt enn stærra hlutverki í þróun menningartengdrar ferðaþjónustu. Á vinnustofunni á Vesturlandi flutti Hjalti Már Einarsson, framkvæmdastjóri Datera, jafnframt hagnýtt erindi um markaðssetningu menningarstofnana.
Skipuleggjendur færa Hjalta og öllum þátttakendum í pallborðsumræðum sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag til áhugaverðra og gagnlegra umræðna. Einnig eru Árbæjarsafni og Landnámssetrinu í Borgarnesi færðar bestu þakkir fyrir góðar móttökur og aðstöðu til viðburðahaldsins.
Vinnustofurnar í nóvember voru þær síðustu af fjórum sem haldnar voru á árinu, en í maí fóru fram sambærilegar vinnustofur á Norðurlandi og Austurlandi. RMF vinnur nú að úrvinnslu og greiningu á umræðum og niðurstöðum vinnustofanna. Niðurstöðurnar verða teknar saman í skýrslu sem áætlað er að komi út í byrjun árs 2027. Vonast er til að þær geti nýst sem grunnur að áframhaldandi samtali og auknu samstarfi safna, menningarstofnana og ferðaþjónustunnar um allt land.
Að verkefninu standa Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Rannsóknasetrið í safnafræði, Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði, Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
Svipmyndir frá vinnustofu á höfuðborgarsvæðinu (Myndir: Kristinn Ingvarsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir)


Svipmyndir frá vinnustofu á Vesturlandi (Myndir: Dagrún Ósk Jónsdóttir og Guðrún Dröfn Whitehead)



Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri