Góð heimsókn til HA og RMF
Á dögunum heimsótti Harald Klaus Dolles Háskólann á Akureyri og Rannsóknamiðstöð ferðamála.
Harold er prófessor við Háskólann í Molde við viðskipta og félagsvísindadeildina: Harald Klaus Dolles - Molde University College Síðastliðið ár hefur Harald tekið þátt í verkefninu Ferðaþjónusta í samhengi sem er leitt af RMF.
Guðrún Þóra, forstöðumaður RMF, fundaði með Haraldi, en hann var einnig gestafyrirlesari í námskeiðinu Þjónustumarkaðsfræði hjá Hafdísi Björgu Hjálmarsdóttur, lektor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri.
Fyrirlesturinn bar yfirskriftina „Perceptions of Place-Based Value – Comparisons Between Different Stakeholders in Rauma Municipality, Norway“. Þar fjallaði Harald um sjálfsmynd áfangastaða og hvernig ólíkir hagsmunaaðilar, svo sem íbúar, ferðamenn og fyrirtæki, upplifa og meta verðmæti staða með mismunandi hætti. Sérstök áhersla var lögð á áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélagið, dreifingu efnahagslegs ávinnings og mikilvægi þess að þróun ferðaþjónustu sé í sátt við íbúa og sérkenni staðarins.
Að auki heimsótti Harold Hjalta Jóhannesson, sérfræðing á RHA til þess að ræða, meðal annars, um fornbíla en Harald er áhugamaður um akstursíþróttir og hefur sjálfur keppt í mótorhjólaakstri á Isle of Man og skrifað fræðigreinar um þá keppni.

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri