Ný skýrsla um Airbnb í dreifbýli

Hrísey - mynd: Vera Vilhjálmsdóttir
Hrísey - mynd: Vera Vilhjálmsdóttir

RMF hefur birt nýja skýrslu, Airbnb tourism in rural Nordic regions: Impacts and stakeholder challenges, sem fjallar um áhrif Airbnb á ferðaþjónustu í dreifbýli á Norðurlöndum.

Skýrslan byggir á rannsóknarverkefni sem hlaut styrk frá Nordregio-NAPA Arctic Co-opertion Programme árin 2021 - 2023 og snéri að rannsókn á umfangi og eðli starfsemi Airbnb á þremur norrænum dreifbýlissvæðum; Norðurlandi (Ísland), Norður-Jótlandi (Danmörk) og Nordland Noregur) -lesa meira hér.

Skýrslan sem hér um ræðir beinir sjónum sínum sérstaklega að samspili hagaðila innan Airbnb ferðaþjónustunnar annars vegar og hins vegar annarra ferðaþjónustuaðila. 

Hægt er að nálgast skýrsluna með öllum helstu niðurstöðum HÉR.

Niðurstöðurnar sýna að aukin útbreiðsla Airbnb skapar bæði tækifæri og áskoranir. Skortur á samhæfingu og tengslum milli Airbnb-leigusala og annarra hagaðila í ferðaþjónustu getur leitt til áskorana á borð við aukið álag á innviði, spennu í nærsamfélögum, þrýsting á húsnæðismarkað og flóknari stjórnun áfangastaða. Á sama tíma kemur fram skýr vilji meðal bæði Airbnb-leigusala og annarra hagaðila til aukins samstarfs, sem gæti stuðlað að sjálfbærari þróun og betri stjórnun ferðaþjónustu í dreifbýli.