Nýr starfsnemi hjá RMF
Nica Derakhshan Nia er nýr starfsnemi hjá RMF.
Nica lauk BS-prófi í umhverfis- og sjálfbærnifræðum frá University of British Columbia í Kanada áður en hún hóf nám í Erasmus Mundus-meistaranámi í sjálfbærri þróun eyja (Sustainable Development of Islands). Námið fer fram við Háskólann í Groningen í Hollandi og Háskóla Íslands.
Samhliða námi sínu hefur Nica tekið virkan þátt í grasrótarstarfi á sviði umhverfismála, meðal annars með þátttöku í skógræktarverkefnum í nærumhverfi og skipulagningu vinnustofa um sjálfbærni.
Í nýlegum rannsóknum sínum hefur hún beint sjónum að norðurljósaferðamennsku á Íslandi. Þar vann hún meðal annars að staðbundinni greiningu og skýrslu sem fjallar um þessa ört vaxandi grein náttúrutengdrar ferðaþjónustu.
Hjá RMF mun Nica starfa við rannsóknarverkefnið Ferðamannaleiðir og Innviðir: Notkun, Aðgengi og Árstíðbundnar Aðstæður.
Ása Marta Sveinsdóttir mun leiðbeina Nica í starfsnáminu.
Við bjóðum Nicu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins!

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri