Rannsóknarverkefni um almyrkva á sólu 2026 hlýtur styrk
Rannsóknamiðstöð ferðamála hefur hlotið styrk frá Byggðarannsóknarsjóði til eins árs vegna rannsóknarverkefnisins Almyrkvi á sólu 2026: Stýring og samhæfing í dreifðum byggðum. Verkefnið fjallar um hvernig sveitarfélög og aðrir lykilaðilar undirbúa sig fyrir og bregðast við aukinni aðsókn gesta þegar almyrkvi á sólu gengur yfir Vesturland og Vestfirði í ágúst 2026. Sérstök áhersla verður lögð á stýringu, samhæfingu og samstarf aðila sem bera ábyrgð á innviðum, þjónustu og öryggi áfangastaða.
Rannsóknin byggir á eigindlegum aðferðum og munu rannsakendur fylgjast með starfi samráðshópa í aðdraganda atburðarins auk þess að taka viðtöl við lykilaðila að honum loknum. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á því hvernig dreifð og fámenn samfélög geta tekist á við tímabundinn álagstopp vegna stórra náttúruviðburða og stuðlað að skilvirkri og samhæfðri viðbragðsgetu.
Vera Vilhjálmsdóttir tók formlega við styrknum frá Byggðarannsóknarsjóði fyrir hönd RMF á aðalfundi Byggðastofnunar sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri, fimmtudaginn 28.maí s.l.
Vera Vilhjálmsdóttir tekur við styrknum frá Kjartani Ólafssyni, formanni stjórnar Byggðarannsóknarsjóða.

Allir styrkþegar Byggðarannsóknarsjóðs 2026.
Myndir: Hjalti Árnason.

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri