RMF leitar að spyrlum

Rannsóknamiðstöð ferðamála leitar að einstaklingum til að sinna spyrlastörfum við framkvæmd spurningakönnunar meðal ferðamanna í vetur fyrir verkefnið Ferðamannaleiðir og innviðir: notkun, aðgengi og árstíðabundnar aðstæður.

Gagnasöfnun fer fram í nóvember og desember 2026 á Norðurstrandaleið og Vestfjarðaleið. Meðal mögulegra staðsetninga eru Akureyri, Húsavík, Siglufjörður, Ísafjörður, Patreksfjörður og Hólmavík, en einnig kemur til greina að safna gögnum á öðrum stöðum á leiðunum.

Vinnutíminn er sveigjanlegur og starfið hentar því vel sem aukavinna. Greitt er fyrir hverja útfyllta könnun.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Ásu Mörtu Sveinsdóttur hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála á netfangið asamarta@rmf.is.