Samstarf safna og ferðaþjónustunnar
RMF er aðili að nýju verkefni, styrkt af Safnasjóði, sem snýr að samstarfi safnageirans og ferðaþjónustunnar á Íslandi.
Markmið verkefnisins er að kanna hvert vægi og gildi safna, setra og sýninga er fyrir ferðaþjónustu á Íslandi og þá verðmætasköpun sem verður til með samstarfi beggja aðila, þ.e.a.s. safnageirans og ferðaþjónustunnar.
Í tengslum við verkefnið varða haldnar málstofur í fjórum landshlutum þar sem rædd verða mikilvæg málefni tengd samstarfi safna og ferðaþjónustu á svæðinu. Fyrstu vinnustofurnar verða haldnar á Akureyri, fimmtudaginn 7. maí, og Egilsstöðum, föstudaginn 8. maí.
Fyrir nánari upplýsingar um vinnustofurnar og skráningu er hægt að fylgja hlekkjunum hér:
- Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi - opin vinnustofa á Akureyri
- Menning og ferðaþjónusta á Austurlandi - opin vinnustofa á Egilsstöðum
Verkefnið hlaut styrk úr Safnasjóði til eins árs en samstarfsaðilar auk RMF eru Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði, Rannsóknasetrið í safnafræði, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS).

Norðurslóð 4 (7. hæð)
600 Akureyri