Vel heppnuð vinnustofa um gagnvirkar lausnir fyrir bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu

Hringur Hafsteinsson ásamt þátttakendum vinnustofunnar
Hringur Hafsteinsson ásamt þátttakendum vinnustofunnar

RMF stóð fyrir vinnustofu um gagnvirkar lausnir fyrir bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu þann 24. mars 2026 í Tæknigarði í Reykjavík. Alls tóku sex þátttakendur þátt í vinnustofunni þar sem fjallað var um möguleika gagnvirkrar og stafrænnar tækni til að skapa nýjar og áhugaverðar upplifanir fyrir ferðamenn sem vilja kynnast heimi bókmennta og kvikmynda á Íslandi. Meðal dagskrárliða voru kynning á UPLIFT verkefninu og erindi frá Hring Hafsteinssyni frá Gagarín sem deildi reynslu sinni af þróun gagnvirkra lausna.

Líflegar og áhugaverðar umræður sköpuðust meðal þátttakenda um möguleika gagnvirkrar tækni (e. immersive technologies) í ferðaþjónustu, sem og um hagnýta þætti sem hafa áhrif á innleiðingu og nýtingu slíkra lausna í raunverulegum verkefnum.

Vinnustofan var hluti af UPLIFT verkefninu, sem er styrkt af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins og miðar að því að efla þekkingu og nýsköpun á sviði menningar- og ferðaþjónustu.