Ferðamenn ánægðir með dvölina í Hrísey

Náttúra og staðsetning Hríseyjar eru helstu aðdráttaröflin fyrir ferðamenn sem leggja leið sína til eyjarinnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu RMF en niðurstöður hennar eru unnar úr könnun sem framkvæmd var meðal ferðamanna í Hrísey af Akureyrarstofu sumarið 2019.

Helstu niðurstöður könnunarinnar sýna t.a.m. að ferðamenn eru almennt mjög ánægðir með dvölina og tæpur helmingur þeirra gisti yfir nótt. Þegar kom að afþreyingu ferðamanna í Hrísey var fuglaskoðun og gönguferðir um eyjuna vinsælast, ásamt því að fara í sund og taka ljósmyndir.

Markmiðið með könnuninni var að afla upplýsinga um ferðahegðun og upplifun ferðamanna í Hrísey en meðal þess sem kannað var hjá ferðamönnum var ferðamáti þeirra, dvalarlengd og hvernig þeir öfluðu sér upplýsinga um eyjuna.

Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á Súpufundi ferðaþjónustunnar á Akureyri í dag en skýrslu með samantekt á öllum helstu niðurstöðum má lesa í heild sinni hér:

FERÐAMENN Í HRÍSEY SUMARIÐ 2019

Gagnaöflun var í höndum Akureyrarstofu en RMF sá um úrvinnslu gagna og samantekt á niðurstöðum. Verkefnið var unnið með stuðningi Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra.