Málstofukall á Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research, Akureyri 22-24.9. 2020

Kallað er eftir málstofum á vísindaráðstefnuna 29th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research, sem haldin verður á Akureyri 22.-24. september 2020. 

Yfirskrift ráðstefnunnar er Mótun hreyfanleika framtíðar: Möguleikar og áskoranir á óvissutímum. Viðfangsefnið er ábyrg ferðaþjónusta og sjálfbær framtíð á tímum loftslagsbreytinga.

Ráðstefnan er hluti af starfi samtakanna Nordic Society for Tourism and Hospitality Research og er vettvangur fræðilegrar umræðu vísindamanna og þróunar á sviði ferðaþjónustu á Norðurlöndunum og í Evrópu. 

Frestur til að skila tillögum að málsstofum er 1. febrúar 2020.

Nánari upplýsingar má finna hér og í pdf hér.