Málþing um miðhálendið

Þann 16. maí næstkomandi munu Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands standa að málþingi um miðhálendið.

Miðhálendi landsins hefur verið töluvert í umræðunni síðustu misseri. Sú umræða hefur meðal annars átt sér stað í tengslum við hinar ýmsu framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á hálendinu og hvernig þær myndu hafa neikvæð áhrif á einstaka náttúru svæðisins og mikilvægi þess fyrir útivist og ferðaþjónustu.

Markmið málþingsins er að vekja athygli á virði miðhálendisins frá ýmsum hliðum, ræða mikilvægi þess að vernda svæðið sem eina heild, og hvernig þá vernd megi tryggja. 
Málþingið fer fram í ráðstefnusal Laugardalshallar (Engjavegi 8) og hefst klukkan 10:30 og lýkur 15:30.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson framkvæmdastjóri Landverndar verður fundarstjóri málþingsins.

Dagskrá:

Hvers vegna að vernda miðhálendið-Hvað er í húfi?

Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði: 
Náttúrufarslegt virði/gildi hálendisins.

Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur á Hagfræðistofnun HÍ:
Hagfræðilegt gildi hálendisins-Er hægt að meta það?

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar:
Hvaða hagsmuni hefur ferðaþjónustan af verndun hálendisins?

Þórarinn Eyfjörð, formaður Útivistar:
Mikilvægi óraskaðs hálendis fyrir útivistarfólk.

Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði:
Hvers virði er náttúra hálendisins fyrir heilsu og vellíðan?

Hádegismatur

Hvernig tryggjum við verndun miðhálendisins?

Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, varaoddviti Skaftárhrepps:
Sýn sveitastjórnarmannsins á vernd hálendisins.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar: Skipulagsmál hálendisins.
Dr. Peter Prokosch: Linking tourism to conservation.

Edward Huijbens, Sérfræðingur hjá Rannsóknarmiðstöð Ferðamála:
Stýring ferðamanna á hálendi Íslands.

Kaffihlé

Umræður

Í lok fyrirlestra er stefnt að því að efna til umræðu meðal málþingsgesta um hvernig tryggja eigi vernd miðhálendisins. Skipulegar  umræður munu eiga sér stað þar sem þátttakendur verða beðnir að koma skoðunum sínum á framfæri. Þær verða svo dregnar saman í lok málþingsins.

Sjá fleiri upplýsingar á Landvernd.is