Skemmtiferðaskip á Akureyri: Forkönnun meðal farþega 2017

Farþegar skemmtiferðaskipa eru mjög ánægðir með viðkomustaðinn Akureyri og eru duglegir að nýta sér skipulagða afþreyingu sem í boði er á heimsóknasvæði.

Flestir ganga frá kaupum á afþreyingu sem hluta af siglingu og annars um borð í skipi, meðan lítill hluti kaupir afþreyingu á hafnarbakka. Yngstu farþegarnir kaupa síður skipulagða afþreyingu í landi en þeir sem eldri eru.

Farþegar eru flestir fullorðið, vel menntað fólk. Flestir höfðu leitað upplýsinga um Ísland á vefsíðum ferðaskrifstofa og með almennri netleit, en þó hafði 1 af hverjum 10 svarenda ekki leitað upplýsinga um Ísland áður en lagt var í siglingu.

Tveir þriðjuhlutar telja líklegt að þeir heimsæki Ísland á ný. Þeir sem eldri eru telja líklegast að það verði hluti skemmtiskipaferðar meðan yngri svarendur telja allt eins líklegt að næst muni þeir ferðast til landsins með flugi.

Þá voru svarendur forkönnunarinnar sérlega hrifnir af fegurð landsins, snyrtimennsku Akureyringa og því hversu viðkunnanlegir og hjálpsamir heimamenn reyndust.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni samantekt RMF á niðurstöðum forkönnunar meðal farþega skemmtiferðaskipa sem framkvæmd var við Akureyrarhöfn síðsumars 2017. Forkönnunin var forsenda viðameiri spurningakönnunar meðal farþega skemmtiferðaskipa á Akureyri sem framkvæmd var sumarið 2018. Niðurstöður hennar verða birtar á vormánuðum.

Samantekt forkönnunar meðal skemmtiskipafarþega á Akureyri sumarið 2017 má lesa hér.